Út að hlaupa

Heimasíða2.png

Tíu vikna hlaupanámskeið sem fer fram í lokuðum hóp á Facebook undir leiðsögn reyndra þjálfara.  Námskeiðið er fyrir byrjendur og þá sem eru að hefja aftur hlaup eftir hlé. Skráningu á námskeiðið sem hefst 5. september 2022 er hafin.

Skráðir þátttakendur fá tölvupóst frá SÍBS með boði í Facebookhóp nokkrum dögum fyrir upphaf námskeiðs athugið að sá póstur getur lent í "ruslinu". Ef engin póstur berst hafið samband [email protected].

Um námskeiðið

Á námskeiðinu er boðið upp á faglega hópfræðslu um æfingar og önnur hlaupatengd málefni auk hvatningar og aðhalds. Fræðslan fer fram í gegnum myndbönd, með stöðufærslum á síðu hópsins og á smærri og stærri fjarfundum með þjálfurum.

Unnið er út frá einfaldri æfingaáætlun sem gerir ráð fyrir að hlaupið sé 3 x í viku (hægt er að velja á milli  erfiðleikastiga). Álag æfinga eykst hægt og rólega í takt við getu hvers og eins. 

Hlaupaæfingar eru á ábyrgð þátttakenda sjálfra, þar sem hver og einn hleypur á sínum hraða. 

Markmiðið er að þátttakendur byggi upp þol til að geta hlaupið í 30 mínútur án hvíldar og finni fyrir jákvæðum áhrifum hreyfingar á andlegt- og líkamlegt form. Stöðumat verður lagt fyrir, bæði fyrir og eftir námskeiðið. Annars vegar  í formi valkvæðrar spurningakönnunar, um líkamlega, andlega og félagslega þætti heilsu, auk þess sem þátttakendur finna þoltölu sína. 

Skráðir þátttakendur fá tölvupóst frá SÍBS með boði í Facebook hóp námskeiðs.  

Umgjörð þjálfunar á Facebook

  • Námskeiðið hefst á undirbúningsviku, með góðum kynninga- og spjallfundum með þjálfurum. Á spjallfundunum gefst þátttakendumt tækifæri til að fá einstaklingsmiðaða ráðgjöf.
  • Æfingaáætlun vikunnar verður til umfjöllunar í upphafi hverrar viku.
  • Þjálfarar veita dagleg góð ráð eftir því sem við á um hlaupatengd málefni s.s. hlaupaskó, hlaupafatnað, teygjur, upphitunar- og styrktaræfingar, hlaupastíll og mataræði.
  • Spurningum þátttakenda svara þjálfarar á vegg námskeiðsins á Facebook og spjallfundum.
  • Þjálfarar fylgjast með því hvort og hvernig þátttakendum gengur að fylgja æfingaáætlun.
  • Þátttakendur deila reynslu sinni og góðum ráðum.

Markhópur

Áherslur á námskeiðinu miðast við byrjendur eða þá sem eru að hefja hlaup eftir hlé. 

Þátttakendur verða að hafa Facebookaðgang.

Þeir sem vilja nýta sér smærri fjarfundina með þjálfurunum þurfa að geta nýtt sér forritið Zoom.

Skráning

Skráning á næsta námskeið er hafin. 

Að lokinni skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum um námskeiðið og boði í Facebook hópinn.

Þjálfarar

Fríða og Ingunn.JPGFríða Rún Þórðardóttir
Fríða er næringarfræðingur að mennt og hefur starfað í eldhúsi Landspítala síðan 1998. Fríða hefur hlaupið í 40 ár og keppti með landsliði Íslands í frjálsíþróttum í um 20 ár. Hún þjálfar nú hlaupahóp Víkings.

Ingunn Guðbrandsdóttir 
Ingunn hefur víðtæka menntun á sviði sálfræði og mannauðsstjórnunar, er heilsu markþjálfi og jógakennari. Ingunn er að auki með um 25 ára reynslu af ýmiskonar líkamsræktar þjálfun. Hún kolféll fyrir langhlaupum fyrir 5 árum síðan. Er jógakennari og aðstoðarþjálfari hlaupahóps Víkings.

Annað

Ef þú svara einhverri spurningu játandi hér á eftir, ráðfærðu þig við lækni áður en þú kemur á námskeiðið. 

  • Ertu yfir fimmtugu og hefur ekki hreyft þig lengi? 
  • Finnurðu fyrir mæði við minnstu áreynslu?
  • Ertu með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting? 
  • Finnurðu fyrir verk í brjósti við hreyfingu?
  • Finnurðu fyrir sársauka í liðum við hreyfingu?
  • Áttu það til að falla í yfirlið við áreynslu?
  • Finnurðu fyrir verk eða bólgum í hálsi, öxlum eftir þjálfun?

Næsta námskeið

Stefnt er að því að halda annað námskeið í upphafi 2023.

Viltu fá tölvupóst þegar næsta námskeið er komið á dagskrá? Hér getur þú skráð þig á tölvupóstlista fyrir áhugasama.

Heilsuefling