Fréttir / 29. október 2018

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sæmdur gullmerki SÍBS

Mynd: Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SÍBS, Sólveig Hildur Björnsdóttir varaformaður SÍBS, Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Sveinn Guðmundsson formaður SÍBS.

SÍBS sæmdi forseta Íslands Guðna Th. Jóhannesson gullmerki SÍBS í tilefni af 80 ára afmæli samtakanna á afmælisdaginn, 24. október síðastliðinn.

Í ávarpi forseta í SÍBS-blaðinu í upphafi afmælisársins segir: „Íslendingar og landsmenn allir eiga SÍBS mikið að þakka. Á merkum tímamótum færi ég samtökunni og starfsliði þeirra þakkir fyrir fórnfúst og göfugt starf og óska þeim allra heilla.“

SÍBS þakkar forseta Íslands heillaóskir á afmælisárinu og mun áfram að stuðla að heilbrigði þjóðarinnar með starfi í þágu forvarna, lýðheilsu og endurhæfingar.

Nýtt á vefnum