Fréttir / 12. desember 2008

Happdrætti SÍBS ekki í textavarpinu


Skrá yfir vinninga í Happdrætti SÍBS birtist ekki lengur í textavarpi Sjónvarpsins. Ástæður eru sagðar þær að dregið verði úr þjónustu sem veitt verður á textavarpi. Happdrætti SÍBS hefur þó ávallt greitt fyrir þessa birtingu.

Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á því að dregið verði úr þjónustu við þá með þessum hætti, en þessu fáum við ekki ráðið.

Morgunblaðið birtir vinningaskrá okkar og hefur gert án gjaldtöku frá upphafi og fyrir það er þakkað.

Síðan er vinningaskrá hér heimasíðunni okkar eftir hvern útdrátt.

 

Nýtt á vefnum