Fréttir / 27. mars 2009

Málþing um innra umhverfi SÍBS


Fimmtudaginn 2. apríl n.k. verður haldið málþing um innra umhverfi SÍBS í Síðumúla 6, kl. 14-17.

Þar verður gerð grein fyrir starfsemi SÍBS, sagt frá starfi og uppbyggingu aðildarfélaganna og helstu verkefnum nýstofnaðs félagsráðs. Félagsráðgjafi SÍBS mun segja frá þjónustu sem veitt er á því sviði.

Sólveig Eiríksdóttir, gjaldkeri SÍBS mun svo taka saman helstu niðurstöður eftir umræður.

Kaffiveitingar verða á boðstólum.

Dagskrána í heild má sjá með því að smella hér

 

Nýtt á vefnum