Fréttir / 4. apríl 2011

Skipulagsbreytingar hjá SÍBS

Guðmundur Löve hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SÍBS. Hann tók til starfa 1. apríl s.l.

Guðmundur er fæddur 1967, er með MBA gráðu frá Viðskiptaháskólanum í Osló og hefur að baki langa reynslu af fyrirtækjastjórnun hér á landi og erlendis. Eiginkona Guðmundar er Hrefna Björg Þorsteinsdóttir arkitekt og eiga þau tvö börn. Stjórn SÍBS býður Guðmund velkominn til starfa.

Frá sama tíma hefur Helgi Hróðmarsson látið af störfum framkvæmdastjóra félagsmála- og fjáröflunarsviðs SÍBS. Helgi hefur starfað hjá SÍBS í tíu ár.

Stjórn SÍBS þakkar honum samstarfið og óskar honum góðs á nýjum vettvangi.

Nýtt á vefnum