Fréttir / 28. mars 2011

Kveðjuhóf fyrir Helga Hróðmarsson

Stjórn SÍBS efndi til kveðjuhófs fyrir Helga Hróðmarsson síðdegis í dag og bauð til þess stjórnarmönnum og starfsfólki í SÍBS húsinu. Í boði voru kaffiveitingar með stórri tertu og öðru góðu meðlæti.

Formaður stjórnar Dagný Erna Lárusdóttir ávarpaði Helga, þakkaði honum fyrir störf hjá SÍBS í áratug og færði honum gjöf frá stjórninni, en Helgi þakkaði fyrir sig með stuttri ræðu.

Helgi lætur af störfum um næstu mánaðamót.

Nýtt á vefnum