Fréttir / 4. maí 2009

Stafaganga á vegum SÍBS


Mánudaginn 18. maí n.k. mun Jóna H. Bjarnadóttir, íþróttakennari og stafagönguleiðbeinandi kynna stafagöngu í Síðumúla 6, kl. 16:00.

Kynningin verður í tengslum við hefðbundna samverustund SÍBS fólks á mánudögum.

 Þeir sem eiga göngustafi vinsamlega mætið með þá. Nokkur pör af auka göngustöfum verða á staðnum. Þeir sem ekki eiga göngustafi geta því fengið þá lánaða meðan endist.

Félagsráð SÍBS

 

Nýtt á vefnum