Fréttir / 4. október 2010

SÍBS dagurinn er í dag

SÍBS dagurinn er í dag, sunnudaginnn 3. október. Því verður opið hús í Síðumúla 6 kl. 13:00 - 16:00. Í boði er kaffi með vöfflum ásamt því að sýndar verða fræðslumyndir úr starfsemi SÍBS og aðildarfélaga þess.

Allir eru velkomnir.

Í upphafi starfs SÍBS var fyrsti sunnudagur fjáröflunar- og merkjasöludagur og lengi burðarás starfsins. Á síðari árum hefur verið opið hús í höfuðstöðvunum og stundum verið boðið upp á blóðþrýstingsmælingar á þessum degi. Slíkt verður væntanlega gert næst í byrjun janúar og verður auglýst nánar þegar nær dregur.

Nýtt á vefnum