Fréttir / 4. október 2010

Gengið á Esjuna

Síðastliðinn miðvikudag tók hópur starfsfólks í Síðumúla 6 sig til og þrammaði á Esjuna. Ekki er hægt að segja að hér hafi verið um augnabliksákvörðun að ræða, því í fyrra var gengið á Úlfarsfell sem æfingu fyrir þessa göngu. Þó eitthvað hafi verið farið að fenna í reynslusporin þar, þá tókst þessi ferð hið besta þrátt fyrir sterkan mótvind á uppleið. Alls tóku níu manns þátt að þessu sinni.

Nýtt á vefnum