Fréttir / 17. september 2009

SÍBS lestin 2009 - dagur 2


Kiddi póstur og Svanborg hlýða á harmonikutóna

 

Morgunverður á Vegamótum og svo til Patreksfjarðar þar sem var vel mætt í mælinguna og við fengum góðar móttökur. Leikið var á harmoniku fyrir sjúklinga og heimilisfólk á sjúkrahúsinu þar sem meðalaldur er hár.

Síðan lá leiðin til Tálknafjarðar og þar var setinn bekkurinn í litla heilsugæsluhúsnæðinu,

en þar voru líka mjög góðar móttökur og mæting afar góð. Þolinmóðir gestir stóðu með veggjum og sátu jafnvel á gólfinu, en allt gekk þetta einstaklega vel.

Tálknafjörður

Ath. Það má tvísmella á myndirnar til að stækka þær.

Bolir, pennar, bæklingar og blöð runnu út hjá okkur eins og heitar lummur, en fræðslumyndir um starfsemi okkar eru jafnan í gangi á meðan beðið er.

Í kvöld komu margir umboðsmanna okkar á svæðinu til Bíldudals og snæddu með okkur kvöldverð á Vegamótum.

Það áttum við mjög notalega kvöldstund með þeim og að lokum var kvöldsopinn drukkinn í 115 ára gömlu húsi Gretu og Péturs, sem nefnist Jónshús, en einnig nefnt Hrútakofinn. Sú heiðursnafnbót er vegna þess að þar bjuggu í upphafi verslunarþjónar P.J. Thorsteinsson, sem allir voru ungir og ógefnir. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá deginum.

Taka númer, gjöra svo vel
Það má alltaf finna pláss

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er ekki alltaf leiðinlegt!
Með umboðsmönnum
 

Nýtt á vefnum