Fréttir / 20. janúar 2004

Þróaði Stafaspilið í leiðinni


Brynja Brynjarsdóttir var í atvinnulegri endurhæfingu á Reykjalundi í haust og þar sagði hún starfsfólki frá hugmynd sem hún var með til að auðvelda börnum að læra að þekkja stafina. Hún var hvött til og aðstoðuð við að þróa hana áfram og búa Stafaspilið til. Það fór síðan á markað fyrir síðustu jól og gerði það gott.

Anna Njálsdóttir og Brynja Brynjarsdóttir
Brynja á son á níunda ári sem greindist ofvirkur og með athyglisbrest þegar hann var þriggja ára. Hún hefur orðið vör við merkjanlega framför hjá honum við það að leika sér með Stafaspilið.  

Stafaspilið er fáanlegt í flestum bókabúðum og stórmörkuðum og með því eru leiðbeiningar um hvernig nota megi það, en auk þess geta notendur valið sér sínar eigin aðferðir.

Með Brynju á myndinni er Anna Njálsdóttir, vinkona hennar sem hefur aðstoðað hana við að koma þesar skemmtilegu hugmynd á framfæri.

Nýtt á vefnum