Fréttir / 5. október 2006

Haukur Þórðarson er látinn


Haukur setur 32. þing SÍBS
Haukur D. Þórðarson, fyrrum yfirlæknir á Reykjalundi og formaður stjórnar SÍBS lést 4. okt. s.l., 77 ára að aldri.

Með Hauki er genginn mikill velunnari og öflugur forystumaður SÍBS.

Haukur var fyrsti sérmenntaði endurhæfingarlæknir á Íslandi og brautryðjandi í þeirri grein með störfum sínum á Reykjalundi frá árinu 1962. Hann var yfirlæknir þar 1970-1999 og formaður stjórnar SÍBS 1990-2004.

Eftirlifandi eiginkona Hauks er María Guðmundsdóttir.

Stjórn SÍBS sendir fjölskyldunni samúðarkveðjur.

 

Nýtt á vefnum