Fréttir / 17. mars 2010

Múlalundur flyst brátt að Reykjalundi


Nú standa yfir flutningar úr leiguhúsnæði Múlalundar í Skipholti í endurnýjað húsnæði á Reykjalundi.

Þegar hús Múlalundar í Hátúni var selt til ÖBÍ s.l. sumar var ákveðið að Múlalundur flytti starfsemi sína í húsnæði sem áður var nýtt fyrir plastframleiðslu á Reykjalundi.

Endurbætur og lagfæringar hafa staðið yfir á því og er stefnt að því að öll starfsemi Múlalundar verði komin þangað uppeftir á vordögum.

 

Nýtt á vefnum