Fréttir / 11. maí 2007

Gönguferð SÍBS um Grasagarð Reykjavíkur


Frá Grasagarðinum í Reykjavík
Félagsmálanefnd SÍBS býður félagsmönnum og gestum að rölta með sér um Grasagarðinn í Laugardal sunnudaginn 13. maí  kl. 13:30.

Þetta er létt og þægileg útivera í fallegu umhverfi og hver og einn fer á sínum hraða og þá vegalengd sem hann treystir sér til. Eftir gönguna, eða í staðinn fyrir hana er gráupplagt að tylla sér niður og fá sér kaffisopa í Café –Flora.  Bílastæði eru við Skautahöllina.

                                                             Margrét

 

 

Nýtt á vefnum