Fréttir / 7. nóvember 2017

Hverning á að matreiða ofnæmisfæði á öruggan hátt?

Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) stendur fyrir enn einu af sínum vinsælu námskeiðum um eldun ofnæmisfæðis í Menntaskólanum  í Kópavogi dagana 22. og 23. nóvember. Fyrri daginn er bóklegt námskeið sem  stendur frá kl. 13-15:30 en seinni daginn er fyrirhugað að byrja kl. 13, en einnig má ræða hvort að tímasetningin frá kl. 15:00-18:30 hentar betur, verður það ákveðið þegar ljóst er með skráningu og óskir meirihluta þátttakenda.

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því að fara yfir hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk, egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna og fullorðinna. Verklegi hlutinn felur í sér eldun og bakstur ýmissa rétta og útfærsla uppskrifta á mismunandi máta eftir því hvaða ofnæmi er um að ræða.

 Markhópur: Matreiðslumenn í eldhúsum, matráðir í eldhúsum í leik- og grunnskóla, heimilisfræðikennarar, starfsmenn og stjórnendur í skólum, foreldrar og forráðamenn barna og ungmenna með fæðuofnæmi, starfsfólk veitingastaða og hótela og aðrir sem áhuga hafa á málefninu.

Leiðbeinendur eru Selma Árnadóttir, varaformaður AO og móðir ofnæmisbarns, Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO og Margrét S. Sigbjörnsdóttir,  kennari og umsjónaraðili með matartæknanemum við Menntaskólann í Kópavogi.  Námskeiðsgjald er 15.000 kr., AO félagar fá 20% afslátt.  Námskeiðsgjald fyrir foreldra/forráðamenn ofnæmisbarna er 5.000 kr. 

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Astma- og ofnæmisfélags Íslands. 

Nýtt á vefnum