Fréttir / 21. ágúst 2017

Heilsan á vogarskálarnar, heiðarlegt samtal um offitu!

Félag fagfólks um offitu (FFO) stendur fyrir ráðstefnunni "Heilsan á vogarskálarnar, heiðarlegt samtal um offitu!" sem verður haldin í Salnum í Kópavogi mánudaginn 18. september næstkomandi kl. 10 –17.  Fyrir hádegi mun fagfólk sem stundar rannsóknir á offitu kynna rannsóknir sínar og niðurstöður en eftir hádegi verða í boði fjölbreyttir fyrirlestrar ætlaðir öllum þeim sem áhuga hafa á heilbrigðum lífsstíl. Skráning í síma 697 4545. Verð 9.900 kr.

 Dagskrá 

09.30 Móttaka og skráning

10.00 Setning

10.10 Fæðuval kvenna og þyngdaraukning á meðgöngu - Laufey Hrólfsdóttir næringarfræðingur og PhD nemi í næringarfræði

10.30 Útivera og náttúrustundir barna á Íslandi og Noregi - Kolbrún Kristínardóttir, sjúkraþjálfari

10.50 Át- og þyngdarvandi: reynsla og lausnir með áherslu á matarfíkn - Ólöf Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður náms í ljósmóðurfræði

11.10 Konur í yfirþyngd: meðátröskun hjá átröskunarteymi geðsviði Landspítala - Birna Matthíasdóttir, listmeðferðarfræðingur

11.30 Offita án ofþyngdar - Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði við Menntavísindasvið HÍ

Hlé

12.30 Móttaka og skráning

13.00 Setning - Erla Gerður Sveinsdóttir, formaður FFO

13.10 Opnunaratriði

13.15 Dying for a bite: obesity and childhood trauma - Chris John MSc

14.00 Tengsl geðrænna erfiðleika og offitu hjá börnum - Sigrún Þorsteinsdóttir, sálfræðingur hjá Heilsuskóla Barnaspítalans

14.20 Er hægt að meðhöndla þunglyndi með lífsstílsbreytingum? - Ingibjörg Gunnardóttir, prófessor í næringarfræði við HÍ

14.40 Áhrif þarmaflóru á líkamsþyngd, efnaskipti og langvinnar bólgur - Birna G. Ásbjörnsdóttir, meistaragráða í næringarlækningum

15.00 Kaffihlé

15.30 Sidekick: Heilsa og lífsstíll - Tryggvi Þorgeirsson, læknir og lýðheilsuhagfræðingur

15.50 The weight of the world:Living with Obesity - Vicki Mooney, Obesity patient, Advocate & General Secretary of the EASO Patients Council

16.15 Borðum okkur til betri heilsu! - Sólveig Sigurðardóttir, Lífsstíll Sólveigar

16.40 Ráðstefnusllit

Nýtt á vefnum