Fréttir / 4. maí 2017

Erindi í Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 26. maí kl. 12

Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, mun ræða "Stóru myndina í heilbrigðismálum" kl. 12-13, föstudaginn 26. maí í stað erindis sem fyrirhugað var 11. maí síðastliðinn en var frestað vegna veðurs. 

Sjúkdómsbyrði Íslendinga má jafna við að ár hvert glatist af hennar völdum fimmtungur landsframleiðslunnar. Í fyrirlestrinum er notast við gögn frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni um „glötuð góð æviár“ vegna sjúkdóms og dauða, og eru gögnin skoðuð á grafískan og gagnvirkan hátt sem gefur afar góða heildarsýn á sjúkdómsbyrðina og ríkuleg tækifæri til umræðu.

SÍBS og aðildarfélög bjóða upp á ókeypis heilsufarsmælingar á heilsugæslum á Vestfjörðum í samstarfi við sveitarfélög og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Mælingarnar eru hluti af SÍBS Líf og heilsa verkefninu

Guðmundur mun í kjölfarið ræða og svara spurningum um erindið og forvarnarststarf SÍBS.

Fundurinn verður haldinn í Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Torfnesi Ísafirði, í fundarsal á 2. hæð.  Jafnframt munum við leitast við að streyma honum á Facebook síðu SÍBS fyrir aðra staði.

 

 

Ítarlegri lýsing:  Sjúkdómsbyrði Íslendinga má jafna við að ár hvert glatist af hennar völdum fimmtungur landsframleiðslunnar, að ótöldum þeim persónulega harmleik sem þar liggur að baki. Í fyrirlestrinum er notast við gögn úr skýrsluröð Alþjóðaheilbrigðsstofnunarinnar (WHO) „Global Burden of Disease“, þar sem teknar eru saman upplýsingar um ótímabæran dauða (YLL), æviár varið við sjúkdóm og örorku (YLD) og samþætta kvarðann Disability Adjusted Life Years (DALY). DALY-kvarðann, sem nefnist „glötuð góð æviár“ á íslensku, mælir WHO með að stjórnvöld styðjist við varðandi ákvarðanatöku í heilbrigðismálum. Í fyrirlestrinum eru þessi gögn skoðuð á grafískan og gagnvirkan hátt sem gefur afar góða heildarsýn á sjúkdómsbyrðina og ríkuleg tækifæri til umræðu.

 

 

Nýtt á vefnum