Fréttir / 9. nóvember 2007

Mælingar á Seyðisfirði


Anna hjúkrunarfræðingur við störf
SÍBS og Hjartaheill sendu fólk til Seyðisfjarðar í gær til að ljúka verkefni SÍBS lestarinnar þar, en ekki varð unnt að vera þar í september. Vel var mætt og tæplega 60 manns komu til að fá mælingu á blóðþrýstingi , blóðfitu og súrefnismettun. Starfsfólk heilsugæslunnar tók þátt í þessu verkefni og tók vel á móti SÍBS fólkinu.
Lárus sýslumaður var tekinn til bæna

 

 

 

Skimun af þessu tagi er að því leyti gagnleg að til hennar mætir oft fólk sem annars myndi ekki gera  sér erindi til læknis en fær einatt upplýsingar sem leiða til frekari skoðunar hjá heilsugæslunni eða viðkomandi læknum.

 

Nýtt á vefnum