Fréttir / 17. ágúst 2016

Haustáskorun SÍBS og Vesens og vergangs hefst 24. ágúst

Haustáskorun SÍBS og Vesens og vergangs er á næsta leiti. Markmiðið er að fá sem flesta til að koma í göngur og bjóða sérstaklega velkomna þá sem hafa lítið gengið eða eru að snúa til baka eftir langt hlé.  Göngurnar eru stuttar til að byrja með og lengjast svo smátt og smátt og enda með dagsferð. Fólk er hvatt til að endurtaka göngu vikunnar tvisvar sinnum áður en kemur að næstu göngu. 

Göngurnar eru á miðvikudagskvöldum hefjast kl. 18:35 og standa í 1,5-2,5 tíma.  Fyrsta gangan er á dagskrá 24. ágúst og svo verða þær vikulega út september (frí 14. sept) og enda með dagsferð um Síldarmannagötur þann 1. október. Það kostar ekki að vera með (nema rútugjald í lokaferðina) og allir eru velkomnir. Tilvalið fyrir vini, ættingja, vinnufélaga eða pör að koma saman, þeir sem koma einir kynnast fleirum. Nánari upplýsingar á Facebook

Eftirfarandi göngur verða farnar miðvikudagana:

  • 24. ágúst - Laugardalurinn, ganga hefst í SÍBS Verslun, Síðumúla 6
  • 31. ágúst - Rauðavatn, ganga hefst við bílastæðin hjá Morgunblaðsprentsmiðjunni í Hádegismóum. 
  • 7. september - Vífilstaðavatn, ganga hefst við Vífilstaði 
  • 21. september - Hvaleyrarvatn og nágrenni, ganga hefst við vestari enda vatnsins 
  • 28. september - Helgafellshlíðar og niður með Varmá í Mosfellsbæ, ganga hefst í Álafosskvosinni 

Lokagangan verður laugardaginn 1. október, haustlitaferð um Síldarmannagötur.  

 

 

 

Nýtt á vefnum