Fréttir / 6. febrúar 2008

Söngur og dans


Það er venju fremur gestkvæmt í SÍBS húsinu í dag og eru menn þó ýmsu vanir.

Heldur lágvaxið fólk í furðubúningum kemur og syngur og stígur jafnvel dansspor til áherslu.

Fyrstu gestirnir í dag voru klappstýrur að hætti amrískra og sjálfur Hómer Simpson fylgdi þeim eftir ásamt dökkum og skuggalegum náunga. Klappstýrurnar fluttu frumsamin lög og dansa með tilþrifum en fylgdarmenn þeirra komu á óvart með íslensku þjóðlagi þrátt fyrir framandi yfirbragð.

Fyrir þetta er allt saman svo launað með mishollum en afar bragðgóðum veitingum.

 

Nýtt á vefnum