Fréttir / 8. febrúar 2008

Afmælisgjöf


Árbæjarútibú Landsbanka Íslands fagnar 40 ára afmæli sínu í dag. Af því tilefni fékk SÍBS að gjöf frá Landsbankanum tvær milljónir króna, sem formaður og framkvæmdastjóri veittu viðtöku.

Það er skemmtilegt þegar afmælisbörn gefa gjafir í tilefni  tímamóta sinna, en SÍBS  á líka afmæli 2008, því í haust verða 70 ár liðin frá stofnun samtakanna.

Stjórn SÍBS flytur Landsbankanum alúðarþakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem mun koma sér vel.

 Smellið á myndirnar fyrir stærri mynd.

 

Nýtt á vefnum