Fréttir / 9. apríl 2015

Frí öndunarmæling 13. nóvember

Samtök lungnasjúklinga og SÍBS bjóða fría öndunarmælingu fimmtudaginn 13. nóvember í SÍBS-húsinu Síðumúla 6, á 2. hæð (lyfta) kl. 13 til 16.

Hafir þú grun um að þú hafir lungnasjúkdóm en ert ekki nú þegar undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks vegna þess, þá er þessi öndunarmæling í boði fyrir þig. Talið er að margir séu með lungnasjúkdóm og viti ekki af því.

Helstu ástæður fyrir því þú ættir að fara í öndunarmælingu eru:Helstu ástæður fyrir því þú ættir að fara í öndunarmælingu eru:

— Þú ert, eða hefur verið reykingamaður
— Þú ert eldri en 40 ára
— Þú hefur haft hósta í langan tíma
— Þú getur ekki gengið upp stiga án þess að að upplifa mæði
— Þú hefur fundið fyrir aukinni mæði síðastliðin ár
— Þú hefur fundið fyrir hvæsandi öndun undanfarin ár
— Þú getur ekki þjálfað þig (hreyft þig) eins mikið og áður
— Þú hefur einhverjar áhyggjur af lungnaheilsu þinni
— Þér líður eins og þú fáir ekki nóg loft
— Þú finnur fyrir verk við inn- eða útöndun

Gert í samstarfi við fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga, göngudeild A3 á LSH og Reykjalund. Ekki er hægt að panta tíma í mælingu fyrirfram, aðeins er hægt að koma á staðinn og taka númer.

Nýtt á vefnum