Fréttir / 19. maí 2014

Styrktarhlaup líffæraþega 2014

Þriðjudaginn 20. maí kl. 19:00 fer fram hlaup til styrktar keppendum á heimsleikum líffæraþega í Mardelplata, Argentínu dagana 23. til 30. ágúst 2015.

Hægt er að hlaupa hvort heldur sem er 5 eða 10 km, og er hlaupið ræst við Víkina, Traðarlandi 1 í Fossvogi. Hlaupaleiðin er hringur í Fossvogsdal; í 5 km er hlaupinn einn hringur en tveir hringir í 10 km. Drykkjarstöð er á miðri leið, við Víkina. Hlaupið var kosið besta götuhlaup ársins 2013.

Þátttökugjald er 2.000 kr fyrir 22 ára og eldri, en 1.000 kr fyrir 21 árs og yngri. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í kvenna- og karlaflokki á báðum vegalengdum. Einnig fjöldi útdráttarverðlauna. Allur ágóði af hlaupinu rennur til heimsleikafara. Skráning hér.

Nýtt á vefnum