Fréttir / 31. maí 2013

Staða þjóðar: Blóðþrýstingur 714 Íslendinga

Helgina 25.–26. maí var boðið upp á ókeypis mælingar á blóðþrýstingi og fleiri gildum í SÍBS-húsinu. Alls voru mældir 714 einstaklingar, og reyndust 60% þeirra vera með of háan blóðþrýsting. Þar af voru 43 einstaklingar á hættusvæði. Mörgum var bent á að fara til læknis í framhaldi af mælingunni.

Mælingar sem þessar benda til þess að skimanir gagnavart lífsstílssjúkdómum eigi fullan rétt á sér, enda má rekja tvo-þriðjuhluta dauðsfalla og drjúgan hluta af örorku til sjúkdóma sem má hafa áhrif á með lífsstíl: mataræði, hreyfingu, áfengis- og tóbaksneyslu, svefnvenjum, streituumhverfi og fleiru.

Verkefnið var samstarfsverkefni SÍBS, Hjartaheilla og Félags hjúkrunarfræðinema, og er lokapunktur á hringferð um landið þar sem á fimmta þúsund einstaklinga hafa þegið boð um skimun á blóðþrýstingi, blóðfitu- og blóðsykursgildum.

Nýtt á vefnum