Fréttir / 23. maí 2013

Ókeypis blóðfitumælingar um helgina

Hjartaheill og SÍBS bjóða öllum þeim sem ekki þekkja gildin sín að koma í ókeypis mælingu á blóðþrýstingi, blóðsykri, blóðfitu og súrefnismettun, helgina 25. – 26. maí í SÍBS húsinu Síðumúla 6. Hjúkrunarfræðinemar í Háskóla Íslands munu framkvæma mælingarnar og gefa vinnu sína báða dagana.

"Hjarta- og æðasjúkdómar eru ein algengasta orsök dauðsfalla og ótímabærs heilsubrests á vesturlöndum" segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS. "Lífstílssjúkdómar eru þegar orðnir heilsufarsvandi númer eitt, en þá má að hluta til fyrirbyggja með hollu mataræði, hreyfingu og öðrum lífsstílsbreytingum. Ég hvet alla sem eru á eða komnir að miðjum aldri til þess að koma og fá að vita hver staðan er."

Opið er frá kl. 11 – 15 laugardag og sunnudag, 25. – 26. maí.

Nýtt á vefnum