Fréttir / 8. maí 2013

Hlaupið til styrktar líffæraþegum

Miðvikudaginn 15. maí kl 19:00 verður ræst í 5 og 10 km hlaup til stuðnings íslenskra þátttakenda á Heimsleikum líffæraþega í Suður-Afríku. Hlaupið er á löglega mældri braut Fossvogshlaupsins, og ræst frá Víkingsheimili.

Þeir sem ekki hlaupa en vilja styrkja þátttakendur geta lagt inn á reikning 0101–26–68. Kennitala 511083–0369. Skýring: "WTG".

Skráning í hlaupið fer fram á hlaup.is.

Nýtt á vefnum