Fréttir / 21. desember 2012

Happdrættisárið 2013

Happdrættisárið 2013 gengur í garð með stærstu vinningaskrá frá upphafi. Alls verða dregnar út 576 milljónir, eða 48 milljónir í hverjum mánuði. Fyrsti útdráttur verður fimmtudaginn 17. janúar. Miðaverð er 1200 krónur á mánuði.

Þeim sem hafa stutt starfsemi SÍBS og Reykjalundar gegnum tíðina, þökkum við innilega fyrir stuðninginn. Nýir SÍBS-vinir eru boðnir sérstaklega velkomnir. Það er einfalt að skrá vinanúmer á sibs.is eða hringja í síma 560 4800.

Á árinu 2013 skerpast enn línur í baráttunni fyrir betri heilsu og endurhæfingu. Um tveir þriðjuhlutar Íslendinga deyja úr sjúkdómum sem hægt er að hafa fyrirbyggjandi áhrif á með lífsstíl, og fyrir hvern einn sem deyr er annar í örorku. SÍBS-vinir hjálpa við að byggja betri þjóð.

Nýtt á vefnum