Fréttir / 22. júlí 2008

Samið um kaup á nýju hjartaþræðingartæki


Skrifað var í dag undir samning um kaup á hjartaþræðingartæki fyrir hjartaþræðingardeild Landspítala við Hringbraut. Kostnaður við nýju hjartaþræðingarstofuna verður fjármagnaður að stærstum hluta með gjafafé frá Gjafa- og styrktarsjóði Jónínu S. Gísladóttur, ekkju Pálma Jónssonar í Hagkaup, og frá Hjartaheillum, landssamtökum hjartasjúklinga. Gjafaféð nemur yfir hundrað milljónum króna.

(Af vef Mbl.is)

 

Nýtt á vefnum