Fréttir / 13. ágúst 2008

SÍBS og NHL eiga afmæli


NHL var stofnað á Reykjalundi
Á þessu ári fagnar SÍBS 70 ára afmæli sínu og jafnframt eiga NHL, norrænu hjarta- og lungnasamtökin 60 ára afmæli, en þau voru stofnuð á Reykjalundi í ágúst árið 1948.

Af þessu tilefni verður efnt til afmælisveislu á Reykjalundi þann 22. ágúst n.k. Þar verður hátíðardagskrá með tónlistar- atriðum og ræðuhöldum og síðan veislukaffi eins og sæmir á stórafmælum. Á þriðja hundrað manns verður boðið til veislunnar. Í tengslum við þessi tímamót er svo vinnufundur NHL hér á landi, en SÍBS hefur verið aðili að þessu norræna samstarfi frá byrjun.

 

Nýtt á vefnum