Fréttir / 5. september 2008

Ályktun aðalstjórnar ÖBÍ 4. sept. 2008


Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir þungum áhyggjum sínum yfir bágri fjárhagsstöðu fjölda öryrkja og sjúklinga vegna sívaxandi verðbólgu og hækkandi verðlags á nauðsynjavörum. Vaxandi hópi öryrkja reynist illmögulegt að láta enda ná saman vegna þessa.

Aðalstjórn ÖBÍ trúir því og treystir að í fjárlögum fyrir næsta ár verði að finna umtalsvert auknar fjárhæðir til handa þeim sem verst standa í íslensku samfélagi. Í þessu sambandi vill aðalstjórn minna á að á meðan lágmarkslaun hækkuðu um 18.000,- krónur í nýgerðum kjarasamningum, hækkaði lífeyrir almannatrygginga einungis um 7%. Það gerir 9.000,- króna hækkun ef einstaklingur hefur fulla greiðslu úr öllum fjórum bótaflokkum almannatrygginga, en lítill hluti öryrkja hefur slíkt.

Þær umbætur sem gerðar hafa verið á almannatryggingakerfinu á árinu eins og afnám tekjutengingar við maka, 100.000,- króna frítekjumark á mánuði á launatekjur, og 25.000,- króna frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur hefur komið ákveðnum hópi til góða, en það hefur ekki nýst öllum öryrkjum.

Í stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks stendur að hlúa beri sérstaklega að þeim einstaklingum sem minnstar hafa tekjurnar í íslensku samfélagi. Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra boðaði framfærsluviðmið sem átti að koma 1. júlí síðastliðinn. Það hefur enn ekki litið dagsins ljós.

Hér með er skorað á stjórnvöld að bregðast við vanda þeirra sem verst eru settir að fyrirbyggja að til komi enn meiri fjárhagserfiðleikar fjölda einstaklinga og fjölskyldna þeirra.

Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands

(Frétt af heimasíðu ÖBÍ)

Nýtt á vefnum