Fréttir / 22. október 2008

36. sambandsþing SÍBS um helgina


Edda Ottadóttir og Otti Pétursson vinna gögn fyrir þingið
Afmælisþing SÍBS og málþingið: \"Hvers virði erum við?\" verður haldið á Reykjalundi dagna 24. og 25. október n.k.

Málþingið sækja um hundrað manns og álíka fjöldi mun sitja sambandsþingið, en þau eru haldin á tveggja ára fresti og eru eins konar aðalfundur SÍBS. Þar eru til umfjöllunar málefni sambandsins, kosið er í stjórnir og nefndir og fleira því tengt. Þingfulltrúum er síðan boðið til veglegs hátíðakvöldverðar á laugardagskvöld.

Dagskrána þingsins má sjá með því að smella hérna.

 

Nýtt á vefnum