Fréttir / 5. desember 2008

Jeppinn til Austfjarða


Dregið var í 12. flokki Happdrættis SÍBS 5. des. Alls voru dregnar út rúmlega 50 milljónir. Hæsti vinningur, CRV lúxusjeppi, kom á númer 18817 sem er á Austfjörðum. Jeppinn á myndinni reyndist vel í vetrarfærð í ferð SÍBS-lestarinnar um Norður- og Austurland í fyrra. Aukavinningar kr. 100.000 komu á nr 18816 og nr. 18818. Að auki voru dregnir út tæplega 3.000 aðrir vinningar sem sjá má á vinningaskránni hérna.

Endatöluvinningar, úttekt hjá Húsasmiðjunni/Blómaval að upphæð kr. 15.000 komu á þau númer sem enda á 00 og 33.

 

 

Nýtt á vefnum