Fræðslumyndbönd / 5. júní 2019

Bólusetningar á Íslandi

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst því yfir að bólusetningar séu hagkvæmustu og árangursríkustu aðgerðir sem hægt er beita í heilbrigðismálum. Í nýrri fræðslumynd fjalla íslenskir sérfræðilæknar um fyrirkomulag bólusetninga hér á landi og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir frá veikindum dóttur sinnar sem smitaðist af kíghósta áður en hún hafði náð aldri til að fá sína fyrstu bólusetningu.

Hægt að velja á milli undirtexta á íslensku, ensku eða pólsku með því að slá á cc-hnappinn.

You can choose subtitles in Icelandic, english or polish by tapping the cc-button.

Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.

Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð ehf. fyrir Embætti landlæknis / Sóttvarnalækni, 2019.

Nýtt á vefnum