Fréttir / 3. október 2016

Erindi Mikaela Odemyr forseta EFA um astma og ofnæmi

Dagana 1. og 2. nóvember nk. verður stödd hér á landi í boði Astma- og ofnæmisfélags Íslands, Mikaela Odemyr er forseti EFA og reynslumikil móðir ofnæmisbarna og virtur fyrirlesari á því sviði.  Mikaela segir sjálf að hún sé engin læknir en hafi yfir tveggja áratuga reynslu á sviði astma og ofnæmis.

Hún hefur verið virk í faglegri fræðslu til fjölskyldna og einstaklinga á sínu heimasvæði í Svíþjóð. Þar talar hún um hvernig hún og fjölskyldan hafi þurfti að lifa með lífshættulegu bráðaofnæmi og astma og vinna með leik- og skólakerfinu á því sviði. Gunnar Jónasson, ofnæmisbarnalæknir mun einnig halda erindi um fæðuofnæmi og hefst það að loknu erindi Mikaelu.

 Mikaela verður með síðdegiserindi í Reykjavík í Hringsal Barnaspítala Hringsins  þriðjudaginn 1. nóvember kl. 16.30.

Á Akureyri er fyrirlesturinn haldinn miðvikudaginn 2. nóvember kl. 16:30 – 18:45 í Brekkuskóla.

Allir eru velkomnir og er aðgangseyrir 1.000 kr

Nýtt á vefnum