SÍBS blaðið / 6. október 2014
SÍBS-blaðið október 2014
Mikilvægt er að setja fram heildræna stefnu í lýðheilsumálum. Lífsstílssjúkdómar eru í dag stærsta ógnin við heilsufar Íslendinga en mjög litlum hluta heildarkostnaðar er varið til forvarna. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni glötuðust árið 2010 á Íslandi 68 þúsund „góð æviár“ vegna ótímabærs dauða eða örorku – og ýmislegt bendir til að ástandið sé að versna. Kostnaður samfélagsins vegna þessa er gríðarlega hár.
Efnisyfirlit
- Forvarnastefna fyrir þjóðarhag- leiðari Auður Ólafsdóttir, varaformaður SÍBS.
- Úr hverju deyjum við?- Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS.
- Þurfum langtímamarkmið óháð ríkisstjórnum- viðtal við Teit Guðmundsson, lækni.
- Hreyfiseðill hagkvæm lausn- Tinna Jökulsdóttir, hagfræðingur.
- Ábyrgt lýðheilsustarf: Heilsa, jöfnuður og réttlæti- Sigrún Daníelsdóttir verkefnastjóri og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri báðar hjá Embætti landlæknis.