test

28ág.
SÍBS Líf og heilsa á Þórshöfn
28. ágúst 2018, kl. 09:00 – kl. 11:00
Heilsugæslan, Miðholt 2
SÍBS Líf og heilsa er forvarnaverkefni um heilbrigði og lífsstíl þar sem SÍBS ásamt Samtökum sykursjúkra, Hjartaheill og Samtökum lungnasjúklinga bjóða almenningi ókeypis heilsufarsmælingu í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og sveitarfélög. Fagfólk frá heilsugæslunni verður á staðnum og veitir ráðgjöf og eftirfylgd. 

Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðið að taka þátt í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum heilbrigðs lífs.

Facebook