Grettir
Líffæragjafir hafa verið allnokkuð í umræðunni undanfarin misseri. Í þessari fræðslumynd er fjallað um fyrirkomulag líffæragjafa hér á landi. Læknar og aðrir fagaðilar útskýra hvernig þær ganga fyrir sig og aðstandendur líffæragjafa og líffæraþega greina frá reynslu sinni.
Þessi fræðslumynd er gefin út af Hjartaheill, í samvinnu við AstraZeneca. Myndinni er ætlað að auka skilning fólks á eðli hjarta- og æðasjúkdóma. Hér er fjallað um nauðsyn þess að takast á við aðstæður á raunsæjan og hvetjandi hátt og ávinninginn sem fylgir því að taka upp hollari lífshætti. Framfarir á sviði lyfja- og læknisfræði og endurhæfingar á síðustu árum hafa veitt hjartasjúklingum ný tækifæri sem ber að nýta. Sérfræðingar í hjartasjúkdómum og heimilislækningum veittu ráðgjöf við gerð myndarinnar.
Hjartaheill eru hagsmunasamtök hjartasjúklinga á Íslandi og starfa í 11 deildum um land allt. Helsta markmið samtakanna er að sameina félagsmenn til baráttu fyrir hagsmunamálum hjartasjúklinga og gæta réttar þeirra á öllum sviðum.Útgefandi fræðslumyndarinnar er samstarfshópur fræðslumyndar um líffæragjafir. Yfirumsjón hafði Runólfur Pálsson læknir, en Landlæknisembættið annast dreifingu.
- AstraZeneca er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki á sviði rannsókna, þróunar og framleiðslu frumlyfja.