Bólusetningar á Íslandi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst því yfir að bólusetningar séu hagkvæmustu og árangursríkustu aðgerðir sem hægt er beita í heilbrigðismálum. Í nýrri fræðslumynd fjalla íslenskir sérfræðilæknar um fyrirkomulag bólusetninga hér á landi og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir frá veikindum dóttur sinnar sem smitaðist af kíghósta áður en hún hafði náð aldri til að fá sína fyrstu bólusetningu.
- Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.
- Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð ehf. fyrir Embætti landlæknis / Sóttvarnalækni, 2019.