70 lítil hjörtu – fræðslumynd um meðfædda hjartagalla
Á hverju ári fæðast um 70 börn með hjartagalla á Íslandi. Gallarnir uppgötvast ýmist fyrir eða eftir fæðingu, þeir eru afar mismunandi og misalvarlegir – en tæplega helmingur barnanna þarf að gangast undir aðgerð af einhverju tagi sem flestar eru framkvæmdar erlendis.
Í myndinni segja barnahjartalæknar meðal annars frá þeim miklu framförum sem orðið hafa í greiningu og meðferð hjartagalla á síðustu árum. Foreldrar segja frá reynslu sinni af því að þegar börn þeirra greinast með hjartagalla, bæði á meðgöngunni og eftir fæðingu, og hvernig er að fylgja þeim til útlanda í hjartaskurðaðgerðir. Sögð er saga Hildar Pálsdóttur sem talið var að yrði aldrei eldri en tíu ára, en er nú á þrítugsaldri og hefur eignast sitt fyrsta barn.
- Umsjón: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson.
- Framleiðandi: Neistinn – styrktarfélag hjartveikra barna.