Myndböndin eru unnin í samstarfi við Embætti landlæknis, Reykjavíkurborg, Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar, Heilsuveru, ÍSÍ, Rauða krossinn og Betri svefn, með styrk frá Lýðheilsusjóði. Myndböndin eru aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku.
Streita
Hæfilegt magn af streitu getur hjálpað okkur að takast á við verkefni og klára þau. Ef við erum undir álagi í langan tíma án þess að fá nægjanlega hvíld getur streitan valdið líkamlegum og andlegum einkennum og skert lífsgæði.

Hvernig á ég að ráða við öll verkefnin?

Þegar stressið er mikið hvað get ég gert til að róa mig?
