Myndböndin eru unnin í samstarfi við Embætti landlæknis, Reykjavíkurborg, Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar, Heilsuveru, ÍSÍ, Rauða krossinn og Betri svefn, með styrk frá Lýðheilsusjóði. Myndböndin eru aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku.
Hreyfing
Kostir þess að stunda reglubundna hreyfingu eru ótvíræðir fyrir almenna heilsu og vellíðan. Þau sem stunda reglulega hreyfingu draga úr líkum á að fá ýmsa sjúkdóma og auka líkurnar á því að lifa lengur og við betri lífsgæði en annars.

Hvernig kem ég hreyfingu upp í vana?

Er hægt að gera hreyfingu skemmtilegri?

Hvaða hreyfing er best til að koma sér af stað?

Get ég fækkað afsökunum fyrir að hreyfa mig ekki?
