Heilsuefling

Heilsumolar

Sutt myndbönd um hvað við getum sjálf gert til að bæta heilsu og líðan.

Gagnreynt efni unnið í samvinnu við opinbera aðila.

Næring

Mataræði er einn af stærstu áhrifaþáttum heilsu. Það sem við borðum getur bæði aukið og minnkað líkur á ýmsum sjúkdómum, svo sem hormónaójafnvægi, sykursýki, krabbameini og hjarta- og æðasjúkdómum.
Sjá myndbönd

Svefn

Svefn er ein af grunnstoðum andlegrar og líkamlegrar heilsu og forsenda fyrir ýmsu öðru sem við getum gert til að bæta heilsuna. Meðan við sofum eiga sér stað líffræðileg ferli sem endurnýja og endurnæra og þannig „hlaðast batteríin“.
Sjá myndbönd

Streita

Hæfilegt magn af streitu getur hjálpað okkur að takast á við verkefni og klára þau. Ef við erum undir álagi í langan tíma án þess að fá nægjanlega hvíld getur streitan valdið líkamlegum og andlegum einkennum og skert lífsgæði.
Sjá myndbönd

Hreyfing

Kostir þess að stunda reglubundna hreyfingu eru ótvíræðir fyrir almenna heilsu og vellíðan. Þau sem stunda reglulega hreyfingu draga úr líkum á að fá ýmsa sjúkdóma og auka líkurnar á því að lifa lengur og við betri lífsgæði en annars.
Sjá myndbönd

Líf og heilsa

Heilsufarsmælingar

Heilsufarsmælingar eru liður í heilsueflingarstarfi SÍBS. Markmiðið er að auka meðvitund almennings um heilbrigðan lífsstíl og hvetja sem flesta til að stíga skref í átt að betri heilsu!
Niðurstöðurnar getur hver og einn skoðað í nafnlausum samanburði við eigin aldur og kyn á mínum síðum á sibs.is.

Heilsufarsmælingar fyrir almenning Mældur er blóðþrýstingur, púls, blóðsykur, súrefnismettun, gripstyrkur og ummál. Þátttakendur geta einnig tekið þátt í könnun um líkamlega, andlega og félagslega þætti heilbrigðis.

Heilsufarsmælingarnar eru samstarfsverkefni SÍBS, Hjartaheilla, Samtaka sykursjúkra, Astma- og ofnæmisfélags Íslands og Samtaka lungnasjúklinga.

Mælingafólk fær sérstaka fræðslu og þjálfun í framkvæmd heilsufarsmælinga. Mælingar eru framkvæmdar undir eftirliti heilbrigðismenntaðs starfsfólks.

Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heilsufarsmælingar í síma 560-4800 eða sendu póst á [email protected].

Lífsstílsþjálfun

Lífsstílsþjálfunin Líf og heilsa er fyrir þá sem vilja bæta heilsu sína. SÍBS stendur ekki fyrir námskeiðum en fræðsluaðilar geta nýtt námskrána (vísa í námskrá)  og námsefnið. Um er að ræða hópþjálfun sem felur í sér fræðslu, virka þátttöku og stuðning. Hún getur staðið í allt að 12 mánuði og skiptist í 16 tíma grunnþjálfun og 10 skipta eftirfylgd.

  • Skipulag
    Þjálfunin er hópnám sem felur í sér fræðslu, sjálfseflingu og markmiðasetningu. Hún stendur yfir í allt að 12 mánuði, með 16 tíma grunnþjálfun og 10 skipta eftirfylgd. Fyrst eru vikulegir tímar, síðan á 2–3 vikna fresti.
  • Markmið
    Auka þekkingu á heilsu, efla heilsulæsi og styðja fólk í að taka ábyrgð á eigin heilsu.
  • Markhópur
    Fyrir þá sem vilja bæta heilsu sína eða eru með heilsufarsvanda, t.d. háan blóðþrýsting eða hækkaðan blóðsykur.
  • Heilsufarsmælingar
    Þátttakendum er boðið upp á heilsufarsmælingar (tengill í heilsufarsmælingar) og þátttöku í rafrænni könnun í upphafi, um miðbiki og lok þjálfunar.