Að undanförnu hefur fólk í vaxandi mæli gert sér grein fyrir mikilvægi hreyfingar til að við halda góðri heilsu. Útihlaup og hjólreiðar njóta vaxandi vinsælda og fjölmargir synda reglulega. Til þess að góður árangur náist þurfa lungun að starfa eðlilega og mikilvægt er að greina orsakir áreynslubundinna einkenna í öndunarfærum.
Astmi er sjúkdómur sem einkennist af bólgum í berkjum lungnanna. Bólgurnar valda aukinni viðkvæmni í berkjunum, svokallaðri berkjuauðreitni og einnig slímmyndun og vöðvasamdrætti í sléttum vöðvum berkjanna.
Flest hlökkum við til vorkomunnar og fögnum því þegar dagana lengir, tré og runnar blómgast og grasið grænkar. Þeir sem eru með frjónæmi og frjókvef horfa þó til sumarsins með blendnum tilfinningum.