„Ég get ekki lengur haldið athygli við einföldustu verkefni!“ „Ég man ekki lengur nöfnin á fólki sem ég þekki!“ „Er ég kannski að fá Alzheimer?“ Það er algengt að heyra eitthvað þessu líkt frá fólki sem á við þunglyndi og kvíða að stríða. Hér verður sjónum hins vegar beint sérstaklega að tengslum þunglyndis og hugarstarfs. Á síðustu árum hefur orðið vart við vaxandi almenna meðvitund og skilning á helstu einkennum þunglyndis. Þau geta t.a.m. lýst sér í depurð eða áhugaleysi, neikvæð- um hugsanagangi þar sem vonleysi og sektarkennd eru áberandi, hugsunum um dauðann, svefntruflunum og þreytu. Hins vegar er fólk kannski síður meðvitað um að þunglyndi getur líka haft áhrif á almennt hugarstarf, eins og athygli, minni, skipulagsgetu og úrvinnsluhraða.