Við lifum á athyglisverðum tímum, þar sem stöðugar breytingar eru í raun eitt af því fáa sem við getum fullkomlega reiknað með. Margar þessara breytinga eru afskaplega jákvæðar – þeim fylgja tækifæri, frelsi og jafnrétti, sem við bjuggum ekki við áður. Að sama skapi hafa áratugalangar rannsóknir sýnt fram á að örar þjóðfélagsbreytingar koma gjarnan niður á félagslegri einingu samfélagsins og geta leitt af sér aukna tíðni frávikshegðunar og andlegrar vanlíðunar.