Stofnfundur kvennadeildar innan Hjartaheilla verður haldinn 5. maí n.k. í SÍBS húsinu (gengið inn bakatil). Fundurinn hefst kl. 20:00.
Hvetur stjórn Hjartaheilla og GoRed á Íslandi allar konur sem kynnst hafa sjúkdómnum að eigin raun eða sem aðstandendur að gerast stofnaðilar.
Dagskrá:
1. Guðmundur Bjarnason formaður Hjartaheilla setur fundinn, segir frá samtökunum og stýrir fundi
2. Ingibjörg Pálmadóttir verndari GoRed á Íslandi
3. Bylgja Valtýsdóttir upplýsingafulltrúi Hjartaverndar
4. Inga Valborg Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur göngudeildar kransæðasjúklinga
5. Léttar veitingar í boði Hjartaheillar