Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Styrkir eru veittir til öryrkja til hagnýts náms, bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum.
Einnig er heimilt að styrkja þá sem vilja hæfa sig til starfa í þágu þroskaheftra.
Umsóknum skal skila til Öryrkjabandalags Íslands, Hátúni 10, Reykjavík fyrir 6. maí nk.
Allar nánari upplýsingar gefa:
Guðríður Ólafsdóttir í vinnusíma 530 6700
Arnþór Helgason í vinnusíma 530 6700.
Styrkjunum verður úthlutað 9. júní.
Stjórn Námssjóðs
Sigríðar Jónsdóttur.