Smelltu til að stækka myndina |
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Dagskráin hefst kl. 11.00 með göngu. Fjórir gönguhópar verða í boði, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi:
Ganga 1: Allt að 1 km ganga við Reykjalund
Ganga 2: 1-2 km ganga á jafnsléttu
Ganga 3: 3ja km ganga með fræðslumolum
Fjallganga á Helgafell
Boðið verður upp á hressingu í matsal Reykjalundar frá kl. 11.30 -13.30
Opna húsið verður opið frá kl. 11-15. Húsakynni Reykjalundar verða opnuð upp á gátt fyrir gestum og gangandi og starfsemi stofnunarinnar verður kynnt.
Fyrir þá sem vilja halda sig áfram utan dyra eftir göngurnar verður kynning á stafagöngu og fjölskylduratleikur kl.13.00.
Nánari dagskrá verður auglýst í fjölmiðlum þegar nær dregur.