Vel var mætt í Síðumúla 6 á SÍBS daginn, 2. okt. sl.
SÍBS dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur með ýmsu móti í meira en hálfa öld og hann er ávallt fyrsti sunnudagur í október.
Á myndinni hér til hliðar er Björn Ástmundsson á tali við Sigurð Rúnar Sigurjónsson formann SÍBS og Gunnellu konu hans. Á milli þeirra sér í Helga Hróðmarsson framkvæmdastjóra SÍBS.