Forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir hóf leikinn |
Forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir mætti fyrst þingmanna og síðan hver af öðrum ásamt starfsmönnum þingsins.
Hjartaheill hefur staðið fyrir mælingum af þessu tagi mörg undanfarin ár víðs vegar um land og er óhætt að fullyrða
að margir hafa fengið þannig ábendingar sem þeir hafa nýtt sér til frekari skoðunar og komist þannig hjá alvarlegum áföllum.
SÍBS ásamt aðildarfélögunum hefur lagt áherslu á forvarnir ekki síður en endurhæfingu og starfsemi af þessu tagi því mjög í anda samtakanna.
Hjartaheill eru færðar þakkir fyrir framtakið um leið og þingfólkinu er óskað góðrar heilsu og farsældar.